Eftirfylgnisskýrsla starfshóps OECD um mútubrot í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery) vegna fjórðu úttektar Íslands var formlega samþykkt á fundi hópsins þann 7. mars síðastliðinn.
Í skýrslunni er einkum lagt mat á árangur íslenskra stjórnvalda við að innleiða tilmæli starfshópsins sem beint var til stjórnvalda í kjölfar 4. úttektar hans á framkvæmd og innleiðingu samnings OECD um mútubrot (e. Anti-Bribery Convention) hér á landi.
Í skýrslunni kemur fram að af þeim 28 tilmælum sem beint var til stjórnvalda hafa 6 þeirra verið innleidd að fullu, 19 hafa verið innleidd að hluta til en 3 tilmæli teljast ekki hafa verið innleidd. Í niðurstöðum skýrslunnar er lögð sérstök áhersla á aðgerðir stjórnvalda til að efla getu til rannsókna á mútubrotum auk nauðsynlegra lagabreytinga sem gerðar voru og varða hámarkslengd refsinga, upptöku eigna, refsiábyrgð lögaðila og refsiákvæði hegningarlaga um mútubrot. Í skýrslunni lýsir starfshópurinn þó einnig áhyggjum yfir því að íslensk yfirvöld hafa enn ekki lokið rannsókn á broti er varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna og eru stjórnvöld hvött til að efla enn fremur getuna til að koma upp um og rannsaka slík mál.