Það er mjög mikilvægt að arðurinn fæst af fiskveiðiauðlindinni fari ekki á fáar kennitölur og komið verði í veg fyrir óeðlilega auðssöfnun og það væri hægt með því að skattleggja arðgreiðslur. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristrúnar Mjallar Frostadóttur hagfræðings sem skipar fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík í næstu kosningum, í síðdegisútvarpinu í dag en hún var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.
Kristrún segir að með þessu móti væri tryggt að þjóðin fengi meira í sinn hlut af sjávarútvegsauðlindinni. Hún segir að horfa þurfi á heildarmyndina og þá jafnframt horfa helst til þess fjár sem greitt er út úr greininni. Hún bendir á að séu veiðigjöld hækkuð sé hætt við að það verði látið bitna á því fólki sem starfar á gólfinu í greininni og því sé mun betri leið að ná hluta af því fé sem fyrirtæki greiði í arð.
Hún segir að með þessu sé dregið úr þeim öfgum sem sést hafa í auðssöfnun á fárra manna hendur og að meiri sátt myndi ríkja ef þessi leið yrði farin
“ ég er alveg hlynnt atvinnufrelsi og því að menn geti eignast einhvern pening en við erum lítið samfélag og það er mjög lítið þol gagnvart þessum öfgum sem við höfum séð í þessum efnum„.
Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan