Þær hugmyndir sem borgaryfirvöld hafa um gróðurhvelfinguna sem gert er ráð fyrir að rísi í Elliðaárdal eru óraunhæfar og framkvæmdin verður bæði borgarbúum og svæðinu dýrkeypt.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Halldórs Páls Gíslasonar formanns Hollvinasamtaka Elliðaárdals í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.
Halldór bendir meðal annars á að heildar raskið sem gert sé ráð fyrir spanni tæpa 43.000 fermetra og að til þess að hægt sé að reisa gróðurhvelfinguna þurfi að færa skolplögn sem liggur undir
“ það mun kosta samkvæmt leið A sem var eina leiðin sem hægt er að fara kostar allt að 600 milljónum króna, eingöngu sú framkvæmd, en þá er allt hitt eftir,„,segir Halldór.
Spor í sandinn ehf fékk óútfylltan tékka hjá Reykjavíkurborg
Útvarp saga hefur heimildir fyrir því að gerður hafi verið samningur milli fyrirtækisins Spors í sandinn ehf sem ætlar að reisa hvelfinguna og Reykjavíkurborgar þess efnis að Spor í sandinn greiði aðeins 20% þess kostnaðar sem hlýst af vegna skipulags lóðarinnar, sem þýðir að borgin greiði 80% þess kostnaðar, en ekkert þak hafi verið sett á þann kostnað sem borgin sé tilbúin til þess að greiða.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.