Eins og fyrr segir er enn erfið færð víða en nokkur hálka eða hálkublettir er víða á Suðurlandi. Þá er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði. Hálka, hálkublettir og snjóþekja eru á Vesturlandi og Vestfjörðum og þæfingur í uppsveitum Borgafjarðar. Á Norðvesturlandi er hálka en snjóþekja og snjókoma er á Vatnsskarði, þæfingur er á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Siglufjörð. Þæfingur og éljagangur er í Blönduhlíð.
Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja og skafrenningur. Lokað er um Hófaskarð og þæfingur og stórhríð er frá Þórshöfn í Bakkafjörð. En er beðið með mokstur á Austurlandi vegna veðurs. Lokað er bæði á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og Fagradal vegna veðurs. Greiðfært er að mestu á Suðausturlandi en eitthvað er um hálkubletti. Óveður og hálkublettir eru í Hamarsfirði.