Það er mjög slæmt að vera borinn þungum sökum og geta ekki varið sig gagnvart þeirri umræðu sem oft á tíðum fer af stað um þann sem er borinn sökum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sævars Þórs Jónssonar lögmanns í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.
Sævar segir að MeToo umræðuna nauðsynlega að vissu marki en þeirri umræðu verði einnig að fylgja ábyrgð
“ lendi menn í því að vera ásakaðir neyðast þeir til að taka slaginn en svo gerist það að þeir eru sýknaðir en eiga samt enn undir höggi í umræðunni og verða aldrei samir eftir að ásökunin kemur fram, þrátt fyrir sýknu„,segir Sævar.
Hann segir ásakanir á netinu einnig vera ákveðið vandamál og oft erfitt fyrir þann sem ásakaður er að sækja mál sitt
“ það er oft mjög erfitt og kostar mjög mikið, og bætur fyrir falskar ásakanir eru afar lágar„.
Hvað varðar ásakanir á vinnustöðum segir Sævar afar bagalegt að ekki séu til samræmdar reglur sem skeri úr um hvað eigi að gera komi slík ásökun upp
“ það getur valdið því að mál sem eigi rétt á sér fari forgörðum og til þess að gæta réttar beggja aðila er gríðarlega mikilvægt að málin sé rétt unnin„.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.