Site icon Útvarp Saga

Fjallað um öryggi og grænar lausnir á siglingaráðstefnu 29. september

Alþjóðasiglingadagurinn er í ár helgaður öryggi og grænum lausnum í siglingum. Af því tilefni verður ráðstefna haldin fimmtudaginn 29. september undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt á Grand hótel í Reykjavík frá kl. 13-16. Ráðstefnan er haldin af innviðaráðuneyti og Siglingaráði í samstarfi við Samgöngustofu, Grænu orkuna og umhverfis- og orku- og loftslagsráðuneytið.

Í tilkynningu segir að markmið ráðstefnunnar sé að kynna nýsköpun og nýjar lausnir í sjósókn og siglingum sem draga úr umhverfisáhrifum og/eða auka öryggi sjófarenda, þ.m.t. orkuskipti, bætta orkunýtingu og siglingaöryggi. Fjölmörg fyrirtæki munu halda fyrirlestra um lausnir sínar og framtíðarsýn.

Þá segir í tilkynningunni að allir séu velkomnir á ráðstefnuna en skráning fer fram á vef Samgöngustofu. Fundarstjóri er Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Hægt er að skrá sig með því að smella á hlekk hér að neðan.

Dagskrá

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla