Site icon Útvarp Saga

Alþjóðagreiðslubankinn stofnar nýsköpunarmiðstöð í Stokkhólmi í samstarfi við norræna seðlabanka

Alþjóðagreiðslubankinn í Basel í Sviss hefur tilkynnt um opnun nýsköpunarmiðstöðvar í Stokkhólmi í samstarfi seðlabanka í Danmörku, á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Þessari nýju Norrænu nýsköpunarmiðstöð verður ætlað að efla greiningu á fjártæknilegri nýsköpun sem er seðlabönkum mikilvæg.

Þá hefur Alþjóðagreiðslubankinn í Basel í Sviss ákveðið jafnframt að stofna fjórar nýjar nýsköpunarmiðstöðvar á næstu tveimur árum til þess að stuðla að alþjóðlegri samvinnu í nýsköpun í fjártækni meðal seðlabanka en Seðlabanki Íslands er hluthafi í Alþjóðagreiðslubankanum.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að Norræna nýsköpunarmiðstöðin verði þungamiðja fyrir samstarf sérfræðinga um nýsköpun, fyrir rannsóknir á straumum í þróun fjártækni sem hafa mikla þýðingu fyrir seðlabanka, og til að efla alþjóðlega samvinnu til að bæta virkni hins alþjóðlega fjármálakerfis.

Norræna nýsköpunarmiðstöðin verður staðsett í Stokkhólmi og mun stuðla að því að Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð verði í fararbroddi í rannsóknum á stafrænum lausnum og greiningu á nýsköpun í fjártækni. Að mati Alþjóðagreiðslubankans mun miðstöðin bjóða upp á sérþekkingu á mörgum sviðum fjármálalegrar nýsköpunar sem er seðlabönkum mikilvæg.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fagnar þessum áfanga í alþjóðlegu og norrænu samstarfi seðlabanka.

Þessi áfangi er staðfesting á því mikilvæga starfi sem tekist hefur á Norðurlöndum þar sem seðlabankar hafa tekið höndum saman um að rannsaka og þróa nýjungar á þessu sviði og þeirri frumkvöðlastarfsemi sem átt hefur sér stað í fjármálatækni á svæðinu. Ísland hefur lengi verið framarlega á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar með virku framlagi Seðlabanka Íslands. Með aðild að norrænni nýsköpunarmiðstöð í Stokkhólmi skapast enn fleiri tækifæri fyrir sérfræðinga frá Íslandi til að miðla af þekkingu sinni og auka við hana í alþjóðlegu samstarfi og til að takast á við áhættu sem myndast getur í fjármálakerfinu og stuðla nýjungum og aukinni skilvirkni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla