Mikið líf og fjör var á Íslandsbásnum fyrsta sýningardaginn en það er Íslandsstofa sem annast skipulagningu Íslandsbássins á sameiginlegu norrænu sýningarsvæði ITB. Á Íslandsbásnum taka að þessu sinni 29 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og þrjár markaðsstofur landshluta þátt undir merkjum Inspired by Iceland. Aldrei hafa fleiri íslenskir aðilar tekið þátt á Íslandsbásnum og eru yfir 100 Íslendingar á svæðinu. Meðal sýnenda á íslenska básnum eru ferðaskrifstofur, hótel, flugfélag og afþreyingarfyrirtæki. Unnið er að markmiðum í íslenskri ferðaþjónustu þar sem lögð er áhersla á að hvetja ferðamenn og erlenda ferðaheildsala til þess að kynna sér ferðaþjónustu um land allt, árið um kring með ábyrgð og öryggi að leiðarljósi.