Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að flugvöllur verði byggður upp í Hvassahrauni.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að flugvöllur verði byggður upp í Hvassahrauni?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 91,5%
Já 6%
Hlutlaus 2,5%