Grunnurinn að framkvæmdaáætluninni var unnin af innflytjendaráði vorið 2014. Byggt er á fimm meginstoðum í áætluninni sem eru eftirfarandi; samfélag, fjölskylda, menntun, vinnumarkaður og flóttafólk. Framkvæmdaáætlunin er kaflaskipt í samræmi við framantaldar meginstoðir. Undir hverri þeirra er fjallað um aðgerðir og helstu markmið þeirra, hvernig framkvæmdinni skuli hagað og hverjir beri ábyrgð á að hrinda þeim í framkvæmd.
Sú stoð sem snýr að samfélaginu fjallar um verkefni sem draga fram tækifæri sem felist í ólíkum menningarlegum bakgrunni landsmanna og til þess fallin að nýta þannig þekkingu innflytjenda til að eflingar í íslensku samfélagi. Meðal aðgerða sem finna má í áætluninni er fræðsla til starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, hvatningarverðlaun til þeirra aðila sem stuðla að faglegri, vandaðri og upplýstri umfjöllun um málefni innflytjenda og þátttöku þeirra í samfélaginu.
Í fjölskyldustoðinni er lögð áhersla á verkefni sem stuðla að aukninni upplýsingagjöf til innflytjenda fyrst eftir komu þeirra til landsins. Þá er gert ráð fyrir að leitað verði leiða til þess að varpa ljósi á aðstæður innflytjenda á húsnæðismarkaði og vinna að bættu húsnæðisöryggi. Í því sambandi verði einkum lögð áhersla á stuðning við þá hópa innflytjenda sem sagðir eru standa höllum fæti og skorti stuðningsnet hér á landi. Þá verði einnig unnið að því að auka þátttöku barna og ungmenna innflytjenda í skipulögðu íþrótta- og æskulýðisstarfi.
Í menntastoðinni er lögð áhersla á jafna stöðu og jöfn tækifæri til menntunar og að þekking og reynsla innflytjenda sé metin. Í áætluninni er lagt til að unnið verði markvissara gegn brottfalli innflytjenda úr framhaldsskólum með stuðningi á öllum skólastigum, meðal annars með aukinni áherslu á kennslu í móðurmáli þeirra barna sem hafa annað móðurmál en íslensku.
Í vinnumarkaðsstoðinni er lögð áhersla á að staða innflytjenda á vinnumarkaði verði styrkt og tryggt að þeir njóti sömu tækifæra og aðrir. Launajafnrétti á vinnumarkaði verði sett í forgang sem og það að tryggja innflytjendum aukin tækifæri til endurmenntunar og starfstengds náms.
Í fimmtu stoðinni sem fjallar um flóttafólk er lög áhersla á að flóttafólk fái fljótt tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, hvort sem er á vinnumarkaði, varðandi menntun eða á öðrum sviðum. Jafnframt fái flóttafólk nauðsynlega aðstoð til að vinna úr þeim áföllum sem það er að kljást við.