Site icon Útvarp Saga

Fréttir vikunnar: Samherjamálið, spillingin og pólitík

Viðar Þorkelsson og Viðar Guðjohnsen

Samherjamálið, spillingin á Íslandi og stjórnmálin voru rædd í fréttum vikunnar í dag. Óhætt er að segja að umræðurnar hafi verið afar líflegar enda voru þeir félagar Viðar Þorkelsson og Viðar Guðjohnsen gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í þættinum.

Þeir félagar ræddu meðal annars um Samherjamálið en skoðanir þeirra í málinu eru afar ólíkar. Viðar Guðjohnsen sagði meðal annars um íslenska fiskveiðikerfið að fólk skilji hreinlega ekki alla þá vinkla sem gilda um fiskveiðikerfið og hvernig það virkar í raun.

Viðar Þorkelsson benti á að fiskveiðikerfið hafi valdið byggðarlögum miklum vandræðum.

Hlusta má á þetta mjög skemmtilega og fróðlega viðtal í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/Fréttir-vikunar-a-Viðar-Þorkelsson-og-Viðar-Guðjohnsen-6.12.19.mp3
https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/Fréttir-vikunar-b-Viðar-Þorkelsson-og-Viðar-Guðjohnsen-6.12.19.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla