Site icon Útvarp Saga

Fyrirvarar í orkupakkamálinu myndu líklega ekki halda

Birgir Þórarinsson.

Lagalegir fyrirvarar í orkupakkamálinu myndu tæplega halda ef málið færi fyrir dóm. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Birgis Þórarinssonar þingmanns Miðflokksins í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Birgir bendir á að menn ættu að líta á önnur sambærileg mál “ eins og kjötmálið, þar voru settir fyrirvarar án samþykkis sameiginlegu EES nefndarinnar og þeir héldu ekki og norðmenn sem eru þungamiðjan í þessu ferli hafa sagt að þeir myndu ekki halda, svo ég sé ekki betur en að við séum að feta sömu braut með þetta mál, því miður„,segir Birgir.

 

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/síðdegi-a-10.4.19.mp3?_=1

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla