
Kathy Ruemmler, aðallögmaður fjárfestingabankans Goldman Sachs og fyrrverandi lögfræðilegur, ráðgjafi Hvíta hússins í forsetatíð Barack Obama, hefur sagt starfi sínu lausu eftir að opinber skjöl sýndu náin persónuleg tengsl hennar við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Greint er frá þessu á vef Russia Today.
Segir fjölmiðlaumfjöllun trufla störf
Ruemmler tilkynnti að hún myndi láta af störfum sem yfirlögfræðingur og aðallögfræðingur bankans frá og með 30. júní 2026. Hún sagði mikla fjölmiðlaumfjöllun um málið vera farna að hafa áhrif á störf sín.
Var í samskiptum við Epstein eftir að hann játaði kynferðisleg samskipti við ólögráða stúlku
Í yfirlýsingu fyrr í mánuðinum sagði Ruemmler að hún hefði kynnst Epstein í starfi sínu sem verjandi og að það hefði verið grunnur sambands þeirra. Hún sagðist ekki hafa haft vitneskju um refsiverða háttsemi hans. Nýjustu skjölin benda þó til þess að hún hafi verið í umfangsmiklum samskiptum við hann á árunum 2014 til 2019, löngu eftir að Epstein játaði sekt árið 2008 fyrir að hafa keypt vændi af ólögráða stúlku.
Gögn um gjafir og fríðindi
Í tölvupóstum sem vitnað er til í erlendum miðlum kemur fram að Ruemmler hafi þegið gjafir og fríðindi af Epstein, þar á meðal vöru og þjónustu á borð við töskur, loðkápur, vín, heilsumeðferðir, hárgreiðslur og flugmiða.
Hringdi þegar hann var handtekinn
Gögnin sýna einnig að Epstein hafi haft samband við Ruemmler símleiðis þegar hann var handtekinn 6. júlí 2019. Á þeim tíma starfaði hún sem lögmaður hjá Latham & Watkins en gekk til liðs við Goldman Sachs árið 2020. Innan Goldman Sachs gegndi Ruemmler stöðum í nefndum sem fjalla um orðspor og hegðun og bera ábyrgð á innra eftirliti með siðareglum bankans.
Enn eitt hneyskslið sem birting Epstein skjalanna varpar ljósi á
Tengsl Ruemmar við Epstein er enn eitt hneykslið sem gögn úr Epstein skjölunum varpa ljósi á en dómsmálaráðuneytið hefur einnig birt úr gögn tengd dánarbúi Epsteins. Birting skjalana hefur valdið titringi víða og leitt til afsagna og rannsókna á tengslum áhrifafólks við Epstein.
