Þá ræddi ráðherra mikilvægi þess að ráðast að rótum vandans og að Sameinuðu þjóðirnar legðu aukna áherslu á að koma í veg fyrir átök.„Það er til lítils að slökkva eldinn ef upptök hans eru ennþá fyrir hendi. Þá mun kvikna bál að nýju. Að ráðast að upptökum eldsins er skilvirkara, ódýrara og bjargar fleiri mannslífum,“ sagði Guðlaugur Þór ennfremur og beindi að lokum orðum sínum að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. „Sameinuðu þjóðirnar eru aldrei sterkari en aðildarríkin leyfa. Við, aðildarríkin, verðum að stíga upp og styðja við Sameinuðu þjóðirnar og störf framkvæmdastjórans,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.