Gullforði djúpríkisins geymdur í Seðlabanka Íran

Umræða hefur aukist á alþjóðavettvangi um umfang eigna sem tengjast nýföllnum leiðtoga Írans, Ali Khamenei, og neti fyrirtækja og sjóða sem hafa starfað undir stjórn íranskra trúarlegra og pólitískra stofnana. Talið er að eignir sem tengjast þessu kerfi geti numið yfir 200 milljörðum bandaríkjadala og séu meðal annars bundnar í gulli, fasteignum og fyrirtækjum sem tengjast orku- og fjármálageiranum.

Gríðarstórt eignasafn

Kjarninn í þessu eignakerfi er sjóðurinn Setad, sem á ensku kallast Execution of Imam Khomeini’s Order. Sá sjóður var stofnaður eftir írönsku byltinguna árið 1979 og var undir beinni stjórn Ali Khamenei. Setad hefur byggt upp umfangsmikið eignasafn sem nær til fasteigna, fyrirtækja og fjárfestinga í mörgum greinum íranskra viðskipta.

Nýjar upplýsingar varpa ljósi á peningaþvætti

Nú hafa komið fram upplýsingar sem benda til þess að aðilar og stofnanir sem tengjast djúpríkinu hafi í stórum stíl flutt fjármuni og gull til Íran í gegnum skúffufyrirtæki og svissneska bankareikninga. Þessi auður sé síðan vistaður í leynilegum geymslum á vegum Seðlabanka Íran. Fjallað er um þessar nýju upplýsingar í færslu á samfélagsmiðlinum X. Þar segir að þessir fjármagns og gullflutningar hafi átt sér stað í stjórnartíð Barack Obama forseta Bandaríkjanna á árunum 2009 til 2016. Þá hefur þeim kenningum verið varpað fram á samfélagsmiðlum að eitt af markmiðum stríðsins í Íran sé að koma þessum fjármunum aftur í réttar hendur.

Samkvæmt rannsóknum Reuters frá árinu 2013 var verðmæti eigna sem tengjast Setad metið á um 95 milljarða bandaríkjadala. Þar var meðal annars vísað til eignarhalds í fjármálafyrirtækjum á borð við Parsian Bank auk fjárfestinga í iðnaði, fjarskiptum og fasteignum.

Valdaklíkur innan stjórnkerfa stýra fjármagninu

Í alþjóðlegri umræðu um peningaþvætti hefur einnig verið bent á að ríkissjóðir og opinberar tekjur geti í sumum ríkjum runnið inn í kerfi fyrirtækja, sjóða og fjárfestinga sem stjórnað er af valdaklíkum innan stjórnkerfa. Slík uppbygging getur leitt til þess að auðæfi safnast á fáar hendur á sama tíma og fjármunir eru fluttir milli landa í gegnum bankakerfi, fasteignamarkaði og verðmætar auðlindir á borð við gull.

Fjármagn sem safnast með þessum hætti er oft bundið í gulli, fasteignum og öðrum varanlegum eignum sem halda verðgildi sínu yfir langan tíma. Slíkar eignir eru taldar gegna hlutverki í því hvernig fjármunir sem tengjast valdhöfum og stjórnmálakerfum eru geymdir og fluttir milli landa í alþjóðlegu fjármálakerfi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila