Hæfniramminn hefur tvíþættan tilgang; annars vegar að auka gagnsæi innan menntakerfis viðkomandi lands og hinsvegar að auka gagnsæi milli evrópskra menntakerfa. Íslenski hæfniramminn telur sjö hæfniþrep og endurspegla hækkandi þrep auknar hæfnikröfur. Þrepin endurspegla þær kröfur sem gerðar eru til einstaklingsins er varða þekkingu, leikni og hæfni í verkefnum, vinnu og samskiptum. Hæfniramminn eykur þannig gagnsæi og varpar ljósi á þá hæfni sem einstaklingur býr yfir að loknu námi á tilteknu þrepi. Upplýsingar um hæfni má t.a.m. nýta í ferilskrá, við starfsþróun og í umsókn um nám. Gert er ráð fyrir að aðilar yfirlýsingarinnar verði samábyrgir fyrir innleiðingu og kynningu á hæfnirammanum en lagt er sérstaka áherslu á að þróaðar verði aðferðir við að skilgreina námslok og tengja óformlegt nám við hæfniþrep rammans.