Site icon Útvarp Saga

Hættumat vegna eldgossins á Reykjanesi uppfært – minni hætta en áður

Hættumat vegna eldgossins hefur verið uppfært og og tók gildi um miðjan dag í gær. Núverandi hættumat mun gilda til 23. apríl, að öllu óbreyttu.

Þær breytingar eru á hættumatinu að hætta vegna hraunflæðis hefur verið lækkuð á öllum svæðum nema svæði 3 (Sundhnúksgígaröðin) og svæði 6. Þessi breyting er gerð vegna þess að það hefur ekki verið virkt hraunflæði á hinum svæðunum síðustu tvær vikur. Miðað við virkni í eldgosinu núna eru metnar minni líkur á því að hraun flæði langt frá gígnum og inn á önnur hættusvæði.

Þessi breyting hefur það í för með sér að heildarhætta á svæði 4 (Grindavík) er nú metin töluverð (appelsínugult) en var áður mikil (rautt). Heildarhætta á öðrum svæðum er óbreytt. Áfram er hætta af völdum gasmengunar metin mikil á öllum svæðum nema Sundhnúksgígaröðinni (svæði 3) þar sem hún er metin mjög mikil. Hætta á svæði 4 (Grindavík) og svæði 6 eru áfram metin mikil vegna jarðfalls ofan í sprungu og sprunguhreyfinga. 

Tilkynning lögreglustjórans á Suðurrnesjum vegna uppfærslu á hættumati má sjá hér að neðan:

Bláa Lónið hefur hafið starfsemi að nýju að höfðu samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.  Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.  Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Öryggisfulltrúi á vegum fyrirtækisins situr daglega morgunfundi aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar.   

Gestum Bláa Lónsins sem og öðrum en viðbragðsaðilum, jarðvísindamönnum, blaðamönnum og þeim sem vinna inn í Svartsengi er ekki heimilt að ganga að gosinu frá bílastæðum Bláa Lónsins eða frá Grindavíkurvegi.   Á hættustundu er lögreglustjóra m.a. heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.

Há gildi af SO(brennisteinsdíoxíð) hafa mælst á svæðinu.   Mikilvægt er að dvelja innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu þegar mengun er mikil.  

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga:

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. 

Lokunarpóstar eru við  Bláalónsveg, Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg, Suðurstrandarveg og Grindavíkurveg. 

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla