
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um aðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran sem lauk í gærkvöld með vopnahléi í 2 vikur, fyrir milligöngu forsætisráðherra Pakistan. Rætt var um áætlun Trump og ríkisstjórnar hans sem birtist í árásum á Íran og tengsl þeirra við alþjóðlegt fjármálakerfi. Fram kom að hernaðarlegur þrýstingur beinist ekki aðeins að stjórnvöldum í Íran heldur einnig að fjármagnsflæði og peningaþvætti sem tengist fjármálamiðstöðinni City of London og breska heimsveldinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Samningatækni mótar aðgerðir
Greint var frá því að framganga Donald Trump byggist á markvissri samningatækni, þar sem ítrustu kröfur og harður tónn væri notaður til að ná fram niðurstöðu. Bent var á að þessi nálgun feli í sér að setja mótaðilann undir þrýsting og skapa svigrúm til samninga á forsendum Bandaríkjanna. Þessi aðferð hafi borið árangur og haft úrslitaáhrif á þróun mála í Íran þar sem breytingar innan stjórnkerfisins hafa átt sér stað, samhliða auknum þrýstingi og sagt frá því að ný ríkisstjórn sé væntanleg í Íran.
Peningaþvætti í gegnum alþjóðlegt fjármálanet
Í þættinum var rifjað upp hverju Trump hafi lofað fyrir forsetakosningar og þær áætlanir sem hafi verið kynntar. Trump hafi ítrekað sagt að hann ætli sér að uppræta fjármálaspillingu, peningaþvætti og svindl sem hann hafi tengt við djúpríkið. Bandaríkjastjórn líti svo á að verulegt fjármagn frá Íran fari í gegnum kerfi sem nær til Persaflóaríkja, Evrópu og Bretlands þar sem City of London er staðsett. Bent var á að fjármunir séu þvegnir í gegnum milliliði, skattaskjól og fjármálastofnanir áður en þeir eru nýttir áfram. Þannig komist aðilar í skattaparadís þvert á landamæri. Þá kom fram að þetta fjármagn tengist meðal annars stuðningi við vopnaðan rekstur og starfsemi hópa á borð við Hezbollah og Hamas sem fjármagnaður er með olíutekjum sem fara í gegnum þetta kerfi. Talið væri að klerkastjórnin í Íran hafi verið virkur þátttakandi í þessu fjármálasvindli í gegnum ákveðna kapla sem hafi verið erfitt að upptæta.
Þjarmað að City of London
Fram kom í þættinum að aðgerðir Bandaríkjanna beinist að því að raska starfsemi fjármálakerfis sem hefur byggst upp í kringum London og tengd svæði. Bent var á að þetta kerfi hafi haft áhrif á fjármagnsflæði, tryggingar, skipaferðir og verðmyndun á alþjóðamörkuðum. Þá kom fram að með þessum aðgerðum sé unnið að því að breyta valdajafnvægi í alþjóðlegum fjármálum og draga úr áhrifum þeirra aðila sem hafa stýrt þessum markaði um árabil.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
