Heimsmálin: Óeirðir aukast á Kúbu eftir djúpa orkukreppu og langvarandi skort

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum um mótmæli og vaxandi óstöðugleika á Kúbu. Þar kom fram að víðtæk mótmæli hefðu brotist út víða um landið eftir að orkukreppa og skortur á eldsneyti og rafmagni, hefðu lamað daglegt líf almennings. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Rafmagnsleysi og eldsneytisskortur

Í þættinum kom fram að orkukerfi Kúbu væri komið að þolmörkum. Fólk hefði átt erfitt með að komast leiðar sinnar þar sem bensín væri vart fáanlegt og rafmagnsskortur hefði valdið því að heimili gætu hvorki eldað né hitað mat. Á mörgum stöðum hefðu íbúar farið út á götur með potta og pönnur og mótmælt stjórnvöldum. Skorturinn tengist meðal annars því að Kúba hefur lengi reitt sig á olíusendingar frá bandalagsríkjum í Suður-Ameríku. Þegar slíkar sendingar hafa dregist saman hefur orkukerfið veikst verulega. Í kjölfarið hefur efnahagsástand landsins versnað og daglegt líf orðið erfiðara.

Kúbverjar þreyttir á langvarandi einræði

Guðmundur sagði að ástandið yrði að skoða í samhengi við langvarandi stjórnarhætti á eyjunni þar sem kommúnistastjórn hefur verið við völd í áratugi. Margir íbúar telji að efnahagskerfið sé komið að endamörkum og kalli nú eftir grundvallarbreytingum á stjórnskipun og efnahagsstefnu. Í umræðunni kom einnig fram að mótmælin væru þau umfangsmestu sem sést hafa á eyjunni um langt skeið og að stjórnvöld stæðu frammi fyrir aukinni pressu frá almenningi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila