Heimsmálin: Trump felur Pentagon að birta gögn um geimverur og fljúgandi furðuhluti

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu, í þættinum Heimsmálunum, um ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að fela bandaríska varnarmálaráðuneytinu, Pentagon og öðrum alríkisstofnunum að hefja ferli við birtingu áður leynilegra gagna sem tengjast geimverum og fljúgandi furðuhlutum. Umræðan um geimverurnar hófst þegar Obama fyrrverandi forseti sagði í sjónvarpsviðtali fyrir skömmu að það væru til upplýsingar um geimverur í Bandaríkjunum. Í þættinum kom fram að málið hefði verið til skoðunar innan Bandaríkjaþings og að umræða um opinberun slíkra upplýsinga hefði aukist verulega eftir ummæli Obama. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skipun til Pentagon um birtingu gagna

Í þættinum kom fram að Donald Trump hefði falið Pentagon og öðrum viðeigandi stofnunum innan bandaríska stjórnkerfisins að hefja ferli við að bera kennsl á og gera opinber gögn sem tengdust rannsóknum á geimverum og fljúgandi furðuhlutum. Bent var á að slík gögn hefðu í áratugi verið flokkuð sem mál sem leynt ættu að fara, hjá varnarmálayfirvöldum og leyniþjónustum Bandaríkjanna. Sjálfur sagði Trump aðspurður, að hann hefði ekki trú á að það væru geimverur á meðal manna en hann vildi láta athuga þær upplýsingar sem væru til.

Þá kom fram að þessi ákvörðun væri tekin í ljósi aukinnar umræðu innan Bandaríkjaþings og í kjölfar ummæla Obama, þar sem nefndir hefðu kallað eftir því að almenningi yrði veittur aðgangur að upplýsingum sem tengdust rannsóknum á óútskýrðum fyrirbærum í lofthjúpi jarðar.

Ummæli Barack Obama höfðu áhrif

Í þættinum kom fram að Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði í sjónvarpsviðtali rætt um upptökur sem bandarísk stjórnvöld hefðu undir höndum af fyrirbærum á flugi sem ekki hefðu fengið tæknilega eða vísindalega skýringu.

Þá kom fram að þessi ummæli Barack Obama hefðu vakið athygli hjá Trump, Pentagon og nefnda í Bandaríkjaþingi þar sem þegar stóðu yfir yfirheyrslur um svokölluð óútskýrð loftfyrirbæri. Í umræðunni var rakið að í kjölfarið hefði Trump sett bandaríska varnarmálaráðuneytið fyrir það verkefni að fara yfir og birta gögn sem gætu innihaldið upplýsingar um tilvist geimvera og fljúgandi furðuhluta.

Elon Musk segist ekki hafa upplýsingar um tilvist geimvera

Í umræðunni var einnig vísað til Elon Musk, forstjóra SpaceX og Tesla, sem starfar á sviði geimferða og eldflaugatækni. Guðmundur Franklín sagði að Elon Musk hefði lýst því yfir að hann hefði ekki orðið var við nein gögn sem staðfestu tilvist geimvera þrátt fyrir starfsemi SpaceX við þróun geimfara og eldflaugakerfa. Þá kom fram að þessi afstaða hefði komið fram samhliða kröfum frá þingnefndum í Bandaríkjaþingi um að Pentagon og aðrar stofnanir gerðu opinber gögn sem tengdust rannsóknum á fljúgandi furðuhlutum og mögulegri tilvist lífs utan jarðar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila