Allir þeir stjórnmálaflokkar sem voru á þingi fyrir hrun og tóku þátt í þeirri atburðarrás sem leiddi til einkavæðingar bankanna bera ábyrgð á því hvernig fór að lokum.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sighvats Björgvinssonar fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.
Sighvatur segir mikilvægt að flokkarnir fari í sjálfsskoðun, geri það upp við sig hvaða þátt þeir áttu í málinu og gæta sín á að gera ekki slík mistök aftur, þetta eigi einnig við um vinstri flokka sem geti ekki hvítþvegið sig
“ þáverandi formaður Samfylkingarinnar fór út um víðan völl til þess að fullyrða það að það væri í lagi fyrir erlenda viðskiptamenn bankanna að treysta þeim, vegna þess að íslendingum væri treystandi, svo hrundi allt, þannig að við öll sem höfum tekið þátt í stjórnmálum erum samábyrg, mismikið en samt sem áður erum við öll ábyrg„,segir Sighvatur.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan