Ísland og Írland munu gegna saman formennsku í Eftirlitskerfinu með flugskeytatækni (e. Missile Technology Control Regime – MTCR) en samstarfið snýst um að takmarka útbreiðslu á eldflaugatækni fyrir burðarkerfi vopna, þ.m.t. gereyðingarvopna. MTCR er mikilvægur liður í vinnu að afvopnunarmálum á heimsvísu og skiptast þátttökuríki á um formennskuna. Þetta er í fyrsta sinn Ísland og Írland gegna formennsku en ríkin tóku við í dag á ársfundi MTCR sem haldinn er í Dublin. Saman munu Ísland og Írland stýra samstarfinu í eitt ár. „
Afvopnun og eftirlit með flugskeytatækni eru grundvöllur þess að ná fram friðsamlegri lausn deilumála og tryggja öryggi eins og viðburðir liðinna mánuða bera vitni um,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. „
Okkur er sýnt mikið traust með því að biðja okkur að taka að okkur formennskuna með Írum. Þetta er ábyrgðarstaða á alþjóðavettvangi og sýnilegt framlag í afvopnunarmálum og eftirliti sem fellur vel að utanríkis- og þjóðaröryggisstefnu Íslands. Þá skapast með þessu nýir möguleikar á samstarfi með vina- og frændþjóð okkar, Írum,“ segir Guðlaugur Þór.
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla