Site icon Útvarp Saga

Ísland tekur þátt í innleiðingu samræmdra vottorða á Evrópska efnahagssvæðinu

Hafin er vinna sem miðar að því að taka inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið tillögu að reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samræmt vottorðakerfi vegna COVID-19, svokölluð græn vottorð. Þetta segir í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. Fram kemur að markmiðið sé að greiða fyrir frjálsri för og tryggja um leið örugg ferðalög milli landa. Stefnt er að því að reglugerð um græn vottorð geti tekið gildi seinni hlutann í júní næstkomandi. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í dag.

Gert er ráð fyrir að reglurnar gildi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu þannig að EFTA-ríkin Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss eigi einnig aðild að þeim. Aðildin felur í sér rétt ríkja til útgáfu samræmdra vottorða og skyldu til viðurkenningar vottorða frá öðrum ríkjum.

EFTA-skrifstofan í Brussel óskaði nýverið eftir afstöðu EFTA/EES ríkja um hvort málsmeðferð reglugerðarinnar verði hraðað hjá sameiginlegu EES nefndinni í þeim tilgangi að reglugerðin taki þá gildi samtímis á öllu EES svæðinu. Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag tillögu um að gera ekki athugasemdir við að málsmeðferðinni verði hraðað.

Víða er unnið að gerð vottorða til að liðka fyrir ferðalögum milli landa. Hér á landi var rafrænt bólusetningarvottorð vegna COVID-19 tekið í notkun í janúar sl.  Á landmærum Íslands eru fjórar gerðir vottorða viðurkenndar, þ.e. a) alþjóðabólusetningarskírteinið, b) bólusetningarvottorð sem staðfestir bólusetningu með bóluefni sem Lyfjastofnun Evrópu hefur mælst til að fái markaðsleyfi og sem uppfyllir leiðbeiningar sóttvarnalæknis, c) vottorð sem staðfestir jákvæða niðurstöður úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt, eða d) vottorð sem staðfestir mótefni með mótefnaprófi sem framkvæmt er með ELISA-aðferð eða sambærilegri aðferð samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis.

Meginefni reglugerðartillögu um samræmd vottorð á Evrópska efnahagssvæðinu:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla