Sama kvöld, austur í Moskvu, verða tónleikar þar sem fram koma annars vegar Emilíana Torrini og hljómsveitin The Colorist og hins vegar Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur. Tónleikarnir eru skipulagðir í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Sound Up Russia, sem einnig mun standa fyrir frekari kynningu á íslenskri tónlist í Rússlandi og ÚTON, Útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir fara fram í Kyndiklefanum „Бойлерная, Хлебозавод №9“ sem áður var, brauðverksmiðja sem nú hefur fengið nýtt hlutverk sem viðburðastaður fyrir fjölbreytta listviðburði.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að í kynningunni felist tækifæri „Nú þegar augu svo margra beinast að Íslandi í kjölfar þessa frábæra árangurs íslenska karlalandsliðsins gefst okkur kærkomið tækifæri til að kynna íslenska menningu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir. „Við leggjum sérstaka áherslu á bókmenntir og tónlist að þessu sinni – og ég er viss um að þetta verður góður upptaktur að auknum menningarsamskiptum.“