Þórdís Kolbrún segir brýnt að fá álit yfirdeildarinnar enda séu ríkir hagsmunir í húfi: „Við höfum síðustu vikur skoðað mismunandi fleti þessa mikilvæga máls. Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frekari ákvarðanir.”
Í tilkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu segir að taki yfirdeildin málið til endurskoðunar verði óskað eftir því að málið njóti forgangs en MDE hefur frá upphafi skilgreint málið mikilvægt og hlaut það flýtimeðferð á fyrri stigum.