Site icon Útvarp Saga

Verkefnisstjórn skipuð vegna fjórðu iðnbyltingarinnar

Mannshöndin kemur nærri mun færri verklegum þáttum framleiðslu en áður

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn um aðgerðir Íslands vegna fjórðu iðnbyltingarinnar. Verkefni hennar verður að koma fram með 20 til 30 aðgerðir sem marki fyrstu skref Íslands til móts við þær breytingar sem í farvatninu eru með fjórðu iðnbyltingunni. 

Í tilkynningu segir að skýrslu nefndar um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna hafi verið skilað í lok febrúar á þessu ári.

Forsætisráðuneytið fylgdi skýrslunni úr hlaði með málþingi um efni hennar auk þess sem haldnar hafa verið margar kynningar um efnið. Á grunni skýrslunnar hafi stjórnvöld svo skilgreint eftirfarandi fjögur markmið:

• Að á Íslandi sé framsækið menntakerfi sem taki mið af þörfum framtíðarinnar fyrir þekkingu á tilteknum sviðum. 
• Að undirbúa atvinnulífið til að nýta þau tækifæri sem felast í fjórðu iðnbyltingunni. 
• Að til staðar sé kerfi sem ýti undir nýsköpun í atvinnulífinu til að mæta framtíðarþróun í tæknimálum. 
• Að innviðir stjórnkerfisins styðji betur við notkun gagna til stefnumótunar. 

Við vinnu sína er verkefnisstjórninni gert að taka tillit til efnis sem þegar hefur verið unnið og vinnu annarra aðila, s.s. greiningar Vísinda- og tækniráðs á samfélagslegum áskorunum og vinnu framtíðarnefndar forsætisráðherra. Þá segir að þegar tillögurnar liggi fyrir muni verkefnisstjórnin kynna drög að aðgerðum fyrir Samráðsvettvang um aukna hagsæld.

Verkefnisstjórnina skipa: 

Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður verkefnisstjórnar.
Stefanía Halldórsdóttir.
Hjálmar Gíslason.
Henný Hinz.
Lilja Dögg Jónsdóttir.
Ásdís Jónsdóttir.
Einar Birkir Einarsson.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla