Katrín Jakobsdóttir gaf tæplega 2 milljarða króna til GAVI sjóðs Bill Gates

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Björn Þorra Viktorsson lögmann í þættinum Fréttir vikunnar um Epstein skjölin sem hafa leitt í ljós að Bill Gates var í umtalsverðum tengslum við Epstein. Kom fram að Epstein notaði aðstoðarmenn svo sem lækna til að koma á tenslum við valdamikið fólk, kóngafólk og stjórnmálamenn í ráðandi stöðu til þess að ná fram fjarstuðningi sem meðal annars var notaður til undirbúnings Covid 19 herferðarinnar sem hófst 2020 . Bill Gates sjóðurinn er mjög áhrifamikill samstarfaðili og lagði sitt af mörkum til Gaví og WHO Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Gaví stjórnaði Covax innkaupum og dreifingu á bóluefnum. BIll Gates er frægur fyrir bólusetningatilraunir á fólki í Afríku og Indlandi. Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra árið 2018 þegar Ísland gerði samning við Gaví og var greitt úr ríkissjóði frá árinu 2018 til 2022 tæplega 2. milljarðar króna til Gaví tendra verkefna án þess að samþykki Alþingis hefði legið fyrir þegar greiðsla fór fram. Skattgreiðendur fengu að greiða fyrir í gegnum háa vexti. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Framlög frá 2018 og tilgreindar greiðslur 2020–2022

Í umræðunni var rakið að Ísland hefði gert samning við Gavi árið 2018 og að í kjölfarið hefðu farið regluleg framlög úr ríkissjóði. Þar kom fram að heildarupphæðin sem vísað var til í þættinum næmi 1,880 milljónum íslenskra króna eða tæpum 2 milljörðum króna samkvæmt opinberum tölum sem hafa verið gefnar upp. Arnþrúður tilgreindi í umræðunni einstakar greiðslur á árunum 2020, 2021 og 2022 og nefndi sérstaklega að 4. júní 2020 hefði farið fram stór einstök greiðsla, að árið 2021 hefði fylgt önnur veruleg greiðsla og að árið 2022 hefði ein greiðslan numið 750 milljónum króna. Í þættinum kom fram að um styrki væri að ræða en ekki viðskipti og að forsætisráðuneytið undir forustu Katrínar Jakobsdóttur þáverandi forsætisráðherra hefði staðið að baki framlögunum.

Katrín gerð að sendiherra WHO

Í umræðunni sagði Arnþrúður að stærsti fjárhagslegi bakhjarl Gavi væri Bill & Melinda Gates Foundation og setti það í samhengi við þá ályktun að framlög Íslands til Gavi tengdust þar með starfsemi Gates-sjóðsins. Þar kom jafnframt fram að Gavi starfaði í nánu samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO og að sami sjóður væri meðal stærstu styrktaraðila WHO. Það veki því athygli að Katrín hafi í kjölfarið verið skipaður sendiherra hjá WHO. Epstein hafði veruleg afskipti af Gaví og WHO í gegnum Bill Gates og kemur fram að það hafi tengst fjármálum fyrst og fremst enda kemur fram í Epstein skjölunum að fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki leituðu peningaaðstoðar eða lána hjá Epstein.

Greiðslur samþykktar eftir á í fjáraukalögum

Í þættinum var því lýst að útgjöld úr ríkissjóði væru því miður oft ákveðin án þess að málið færi fyrir Alþingi. Björn Þorri vakti athygli á því að engar greiðslur mætti greiða úr ríkissjóði án samþykkis Alþingis, slíkt væri brot á stjórnarskrá. Greiðslur úr ríkissjóði eigi að byggjast á skýrri lagaheimild og fjárveitingu. Um sé að ræða fyrirkomulagi þar sem ráðstöfunum væri síðan „sópað upp“ ári síðar í fjáraukalögum og svokölluðum bandormum þegar ekkert væri lengur til að stöðva greiðslurnar eða kalla fram raunverulegt aðhald.

Í skýringum á útgjöldum er ekki sagt frá háum peningagjöfum til erlendra aðila

Í þættinum sagði Arnþrúður að þegar spurt væri um stöðu ríkisfjármála og útgjaldavöxt væru skýringar oft settar fram með vísan til COVID og eldgos og einnig var nefnt Grindavík í því samhengi. Hún lýsti því í umræðunni að þessar skýringar kæmu gjarnan í stað þess að sundurliðun lægi fyrir um einstakar greiðslur og ábyrgð á þeim. Ekki hvað síst væri mikilvægt að segja frá þeim fjármunum sem hefðu verið gefnir erlendis eins og til Bill Gates á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Verulega hefur verið þrengt að almenningi og fyrirtækjum með háum vöxtum sem má rekja til óhóflegrar eyðslu æðstu manna og lágmark að fólki sé sagt frá því fyrir hvað það er að greiða.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila