Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Arnar Þór verði næsti forseti Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvern myndir þú vilja sjá í embætti forseta á Bessastöðum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari : 71,6%
Halla Tómasdóttir, forstjóri: 10,6%
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði: 4,1%
Ástþór Magnússon, athafnamaður og stofnandi Friðar 2000: 3,9%
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: 3,4%
Jón Gnarr, leikari og fyrrverandi borgarstjóri: 2,8%
Alma Möller, landlæknir: 1,9%
Eyjólfur Guðmundsson, fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri: 0,9%
Tómas Logi Hallgrímsson, björgunarsveitarmaður og rafvirki: 0,5%
Salvör Nordal, umboðsmaður barna: 0,3%
Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og fyrrverandi formaður FKA: 0%
Greidd voru 564 atkvæði