Site icon Útvarp Saga

Könnun: Aðeins 12% styðja ríkisstjórnina

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu styðja ekki ríkisstjórnina. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Styður þú ríkisstjórnina?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 85,2%
Já 12,4%
Hlutlaus 2,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla