Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru sáttir við að Logi Einarsson láti af formannsembætti Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sátt/ur við að Logi Einarsson hætti sem formaður Samfylkingarinnar?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 75,3%
Hlutlausir 13,6%
Nei 11,1%