Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja flytja inn menntamenn erlendis frá og ráða þá til starfa í embættismannakerfinu. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring en í þessari könnun var spurt: Á að flytja inn Erlenda menntamenn til landsins og ráða til starfa í embættismannakerfið?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 51,5%
Nei 41,1%
Hlutlaus 4,1%
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla