Site icon Útvarp Saga

Könnun: Sigríður Björk ríkislögreglustjóri ætti að segja af sér

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri ætti að segja af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri að segja af sér?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 77,1%

Nei 17,6%

Hlutlaus 5,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla