Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að stjórnmálastéttin eigi ekki að ákvarða og ráða efni stjórnarskrárinnar.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á stjórnmálastéttin að ákvarða og ráða efni stjórnarskrárinnar?.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 92,3%
Já 4,8%
Hlutlaus 2,9%