Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að til átaka geti komið á milli Rússlands og NATO. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú hættu á að það komi til átaka á milli NATO og Rússlands?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 64,6%
Nei: 23,7%
Ekki viss: 11,6%