Site icon Útvarp Saga

Könnun: Vilja ekki að einkaaðilar reisi og reki nýjan spítala í Mosfellsbæ

mosoMeirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að einkaaðilar fái að reisa og reka nýjan spítala í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að einkaaðilar fái að reisa og reka spítala í Mosfellsbæ?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 55,87%
Já 37,82%
Hlutlaus 6,30%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla