Site icon Útvarp Saga

Könnun: Vilja ekki að útvarpsstöðvar byrji að spila jólalög fyrir 1.desember

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að útvarpsstöðvar byrji að spila jólalög fyrir 1.desember. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að útvarpsstöðvar byrji að spila jólalög fyrir 1.desember?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 68,4%

Já 23,4%

Hlutlaus 8,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla