Site icon Útvarp Saga

Kristrún setur fram þrjár grundvallarkröfur Samfylkingar

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, kynnti í dag nýjasta útspil flokksins sem ber yfirskriftina Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum á fréttamannafundi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Útspilið er afrakstur af metnaðarfullu málefnastarfi síðustu 6 mánuði þar sem forystufólk flokksins heimsótti 180 fyrirtæki og efndi til 26 opinna funda um atvinnu og samgöngur víðs vegar um landið.

„Þetta eru kröfur frá þjóðinni sem við höfum meðtekið og gerum að okkar: Þrjár grundvallarkröfur í atvinnu- og samgöngumálum sem Samfylkingin gerir til næstu ríkisstjórnar – sem við bjóðum okkur fram til að leiða,“ segir Kristrún í tilkynningu til fjölmiðla.

„Þannig felur Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum í sér eins konar verklýsingu fyrir nýja ríkisstjórn – þrjár grundvallarkröfur í mikilvægum málaflokkum og aðgerðir til árangurs svo hægt verði að ná settu marki á tveimur kjörtímabilum.“

Áður hafði Samfylkingin kynnt útspilið Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum, þar sem sett voru fram fimm þjóðarmarkmið og örugg skref í rétt átt. Næst á dagskrá eru húsnæðis- og kjaramál sem verða í forgangi hjá flokknum næstu 6 mánuðina.

Í sem allra stystu máli eru grundvallarkröfurnar þrjár eftirfarandi:

1. Krafa um framfarir í orku- og samgöngumálum

2. Krafa um skynsemi í auðlindastefnu

3. Krafa um íslensk kjör og atvinnustefnu fyrir Ísland

Í hverjum kafla fyrir sig eru síðan settar fram aðgerðir til árangurs svo hægt verði að ná settu marki. Hér fyrir neðan má lesa stutta samantekt á ýmsum atriðum úr útspilinu sem kunna að vekja athygli.

Útspilið í heild má lesa á vef Samfylkingarinnar eða á pdf-formi hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla