Þá séu ýmis önnur álitaefni sem hafi verið uppi í tengslum við lagalega stöðu rafmynta, t.d. hvernig skuli greiða skatta af viðskiptum með þær. Jafnframt er til staðar gríðarleg óvissa um verðgildi rafmynta, enda hafa dæmin sýnt að gengi þeirra getur sveiflast mikið.
Þá segir einnig í tilkynningunni að á vettvangi Evrópusambandsins sé náið fylgst með þróun rafmynta en enn liggi ekki fyrir drög að löggjöf um efnið þótt ýmsar tillögur og hugmyndir hafi komið fram.
Í Evrópu hefur verið stigið varlega til jarðar og ekki verið vilji til þess að setja á löggjöf sem gæti virkað hamlandi á framþróun. Fram kemur að Fjármála og efnahagsráðuneytið fylgist með þessari þróun og hafi almennt talið að æskilegt væri að Ísland fylgi þróun innan ESB og setji ekki séríslenskar reglur um rafmyntir.
Erfitt er að segja til um umfang rafmynta hér á landi, en ljóst sé að töluvert er um gröft eftir rafmyntum í gagnaverum hér á landi. Með greftri er átt við að notaður sé reikniformúla til að leysa flókin stærðfræðidæmi sem styrki keðjuna og í staðinn fáist rafmyntir.