Site icon Útvarp Saga

Leggja til eftirlit með sýklaónæmum bakteríum verði hert

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að setja fram tillögur um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hér á landi hefur skilað Óttari Proopé heilbrigðisráðherra skýrslu með tillögum sínum . Niðurstöður nefndarinnar verða kynntar á ráðstefnu um sýklalyfjaónæmi sem haldin er í dag.
Sýklalyfjaónæmi er ein helsta ógn sem steðjar að lýðheilsu, matvælaöryggi og framþróun í heiminum í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Dauðsföllum af völdum fjölónæmra baktería fer fjölgandi. Áætlað er að sýkingar af völdum sýklalyfjaónæmra baktería valdi nú þegar um 700.000 dauðsföllum í heiminum á hverju ári og að þeim fjölgi í allt að 10 milljónir á ári árið 2050 verði ekkert að gert.
Í skýrslu starfshópsins er gerð grein fyrir helstu áhættuþáttum sem stuðla að útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og tilgreindar aðgerðir í tíu liðum sem hópurinn leggur til svo koma megi í veg veg fyrir frekari útbreiðslu þess.
Hér á landi hefur sýklalyfjaónæmi verið mun minna vandamál en í nálægum löndum og telur starfshópurinn því mikilvægt að móta sem fyrst opinbera stefnu um aðgerðir til að stemma stigu við frekari útbreiðslu. Brýnt sé að ráðast í þær aðgerðir sem hópurinn leggur til svo koma megi í veg fyrir þær heilsufarslegu og fjárhagslegu afleiðingar sem skapast geta af sýklalyfjaónæmum bakteríum. Meðal þeirra aðgerða sem hópurinn leggur til er að efla eftirlit með sýklaónæmum bakteríum.
Í starfshópnum áttu sæti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sem var formaður hópsins, Sigurbjörg Daðadóttir yfirdýralæknir og Vala Friðriksdóttir deildarstjóri Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum.
Í dag kl. 13.30 verður haldin í Reykjavík ráðstefna um baráttuna gegn sýklalyfjaónæmi og þar verða m.a. kynntar niðurstöður starfshópsins. Matvælastofnun og Matvælaöryggisstofnun Evrópu standa fyrir ráðstefnunni.
Smelltu hér til þess að skoða skýrsluna

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla