Leynigeymslur Jeffrey Epstein enn ókannaðar

Bandarísk yfirvöld hafa enn ekki leitað í leynilegum geymslueiningum sem barnaníðingurinn Jeffrey Epstein notaði til að fela tölvur, skjöl og annan búnað samkvæmt umfjöllun breska dagblaðsins Telegraph sem lesa má með því að smella hér.

Kom tölvum og gögnum undan húsleit

Samkvæmt gögnum sem Telegraph byggir á þar á meðal kreditkortafærslum, húsleitarheimildum og öðrum rannsóknargögnum leigði Jeffrey Epstein að minnsta kosti sex geymsluhúsnæði víðs vegar um Bandaríkin. Þar geymdi hann gögn og tölvubúnað sem fluttur var úr fasteignum hans áður en lögregla framkvæmdi húsleit.

Réð einkaspæjara til þess að fela tölvurnar

Í einu tilviki fól Jeffrey Epstein einkaspæjarastofunni Riley Kiraly að flytja tölvur úr heimili sínu eftir að hann fékk vitneskju um fyrirhugaða húsleit lögreglu. Í tölvupósti frá ágúst 2009 staðfesti Bill Riley fyrrverandi lögreglumaður og einkarannsóknaraðili að hann hefði tekið tölvur og skjöl úr húsi Jeffrey Epstein áður en húsleitarheimild tók gildi og komið þeim fyrir í geymslu. Árið 2010 óskaði Jeffrey Epstein eftir leigu geymslurými í New York þar sem sambærilegum gögnum var komið fyrir.

Rannsókn í Nýju-Mexíkó enduropnuð

Í síðustu viku var greint frá því að sakamálarannsókn í Nýju-Mexíkó sem lauk árið 2019 hafi verið tekin upp að nýju eftir að tölvupóstur sem nýlega var gerður opinber benti til þess að líkamsleifar gætu verið grafnar í nágrenni við fyrrum búgarð Jeffrey Epstein, Zorro Ranch.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila