Site icon Útvarp Saga

Lögreglan varar ungar stúlkur við gylliboðum um módelstörf í Kanada

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu kannað bakgrunn erlends fyrirtækis sem sett hefur sig í samband við íslenskar stúlkur í þeim tilgangi að bjóða þeim að sinna módelstörfum í Kanada. Lögreglan vill koma þeim skilaboðum til þeirra stúlkna sem fengið hafa slík boð að þau ekki án þess að kanna til hlítar það fyrirtæki sem á í hlut. Þá biðlar lögreglan til þeirra sem fengið hafa slík boð að setja sig í samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gegnum fésbókarsíðu lögreglunnar eða senda ábendingu á netfangið abending@lrh.is.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla