Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún varar við bröttum hlíðum við gosstöðvarnar. Þá biðlar lögregla til fólks að gæta þess að klæða sig vel enda kalt í veðri.
Sóttvarnalæknir hefur hvatt fólk til að sitja heima. Reipin í bröttum brekkunum geta borið COVID-19 smit. Biður sóttvarnalæknir fólk að reyna að forðast snertingu við reipin og tryggja tveggja metra reglu milli einstaklinga.Grímuskylda er þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum . Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2005 eða síðar.
Í dag er spáð vestan 8/13 m/s og dálítilli rigningu eða súld af og til, en dregur úr vindi og styttir upp síðdegis. Hiti 7 til 8 stig.
Opnað var fyrir umferð kl. 6 í morgun og lokað verður inn á gossvæðið kl. 18 í kvöld. Rýming gossvæðis hefst kl. 22 í kvöld en áætlað er að viðbragðsaðilar ljúki þar störfum fyrir miðnætti.