Það er algjört skilyrði og lykilatriði að ef hafist verði handa við að koma upp borgarlínu verði aðrar samgöngur í borginni bættar samhliða. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Vilhjálmur segist ánægður með að þetta hafi verið samþykkt í fyrsta hluta verkefnisins sem nær til fimm ára tímabils “ þarna kemur fram okkar skýra stefna um að við styðjum fjölbreyttar samgöngur og við leggjum þunga áherslu á að einn samgöngumáti þrengi ekki að öðrum samgöngukostum, það verður að horfa á heildarmyndina„,segir Vilhjálmur.
Veggjald stuðli að hagkvæmni og öryggi á vegum
Vilhjálmur segir að fyrirhuguð veggjöld séu hugsuð þannig að þau stuðli að bættu vegaöryggi, hægt verði að stytta leiðir og spari notendum eldsneyti “ því verður í raun ekki um auknar álögur að ræða því þetta mun spara fólki töluverðar upphæðir í eldsneytiskostnað og fólk kemst fyrr á áfangastað„.