Site icon Útvarp Saga

Miðflokkurinn kynnir frambjóðendur í Árborg

Frambjóðendur Miðflokksins í Árborg ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni flokksins.

Miðflokkurinn í Árborg kynnti fyrir stundu þá frambjóðendur sem skipa sex efstu sætin á lista flokksins í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur verður oddviti flokksins og annað sætið skipar Guðrún Jóhannsdóttir viðskiptafræðingur. Á þriðja sæti listans er Solveig Pálmadóttir  en hún er með Bs í viðskiptalögfræði og er einnig hársnyrtimeistari. Hér að neðan má sjá efstu sex frambjóðendur listans.

 

 

1. Tómas Ellert Tómasson Oddviti og byggingarverkfræðingur

2. Guðrún Jóhannsdóttir Viðskiptafræðingur

3. Solveig Pálmadóttir  með Bs í Viðskiptalögfræði og hársnyrtimeistari

4. Ari Már Ólafsson Húsasmíðameistari

5. Erling Magnússon Lögfræðingur

6. Sverrir Ágústsson Félagsliði á réttargeðdeild LSH

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla