Sendir Útvarps Sögu á höfuðborgarsvæðinu eyðilagðist í morgun vegna framkvæmda fjarskiptafyrirtækisins Mílu á RÚV reitnum svokallaða. Klippt var á streng á svæðinu sem orsakaði að skammhlaup hljóp í sendinn með þeim afleiðingum að hann eyðilagðist. Af þeim sökum eru útsendingar stöðvarinnar slitróttar í mono útvarpstækjum víða um landið en unnið er að viðgerð og eru útsendingar stöðvarinnar keyrðar út á varasendi þessa stundina.
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla