Site icon Útvarp Saga

Mörg dæmi um að starfsmenn barnaverndar skáldi upp skýrslur – Börn þurfa talsmann gagnvart barnaverndaryfirvöldum

Dæmi eru um að starfsmenn barnaverndaryfirvalda á Íslandi skáldi upp skýrslur um atvik í barnaverndarmálum og jafnvel hagnýti sér aðstæður sem þeir hafa sjálfir skapað fjölskyldum í þeim tilgangi að taka börn frá foreldrum sínum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Söru Pálsdóttur lögmanns í síðdegisútvarpinu í dag en hún var gestur Péturs Gunnlaugssonar.

Hún segir að þegar hún hafi farið að vinna á málum sem tengist barnavernd, sér í lagi málum fósturbarna hafi hún fljótlega gert sér grein fyrir því að pottur væri brotinn í kerfinu svo vægt sé til orða tekið, hún hafi í fyrstu leitað með ýmis mál þar sem hún taldi brotið á réttindum barna af hálfu barnaverndaryfirvalda til þar til bærra aðila en tilhneiging kerfisins hafi verið sú að leggja blessun sína yfir þá háttsemi sem var viðhöfð gagnvart börnunum.

Því hafi hún ákveðið að vekja athygli á því hvernig þessum málum væri háttað á Íslandi og hóf að skrifa pistla um brot barnaverndaryfirvalda gegn börnunum en í nýlegri grein hennar á Vísi fer hún yfir þær misfellur og lögbrot barnaverndar sem upp hafa komist um í gegnum tíðina.

Eitt málanna varðar til dæmis barn foreldra sem sett hafði verið í fóstur fósturheimili og var barnið notað sem viðfangsefni í þættinum Fósturbörn án þess að leitað hafði verið samþykki fyrir því hjá foreldrunum eða þeir látnir vita hvað til stæði. Foreldrar barnsins fengu áfall þegar þeir komust að því að barnið væri í þættinum og er skemmst frá því að segja að þau jöfnuðu sig aldrei á því.

Enginn axlar ábyrgð

Hún segir að það sem verra sé er að enginn sé að axla ábyrgð á þeim málum þar sem upp hefur komist að brotið hefur verið gagnvart börnum af hálfu barnaverndaryfirvalda.

„en auðvitað er þetta fyrst og fremst á ábyrgð stjórnvalda, starfsmönnum barnaverndar og síðan úrskurðaraðila og dómstóla að tryggja að hér sé við lýði kerfi sem að virðir mannréttindi, sem virðir friðhelgi einkalífs þeirra fjölskyldna sem einhverra hluta vegna að vera skjólstæðingar barnaverndarkerfisins og ég er að gagnrýna það harðlega í þessum pistli að það er enginn að axla þessa ábyrgð“segir Sara.

Hún segist hafa séð það of oft að dómstólar treysti um of á starfsmenn barnaverndar sem og barnaverndarnefndirnar sjálfar treysta um of að barnaverndarstarfsmennirnir séu að vinna rétt og það sé ekki farið ofan í saumana á þeim málum sem kvartað sé undan eða hafa verið kærð.

„þegar ég hef verið að benda á misfellurnar fyrir dómi eða úrskurðarnefnd velferðarmála þá er ekki verið að hlusta eða taka mark á því sem verið sé að segja og það er verið að horfa fram hjá þessum mannréttindum og allt of oft verið að staðfesta eitthvað sem á ekki við rök að styðjast“

Dómstólar skella skollaeyrum við ábendingum um uppskáldaðar skýrslur barnaverndaryfirvalda

Hún segir að svo virðist sem kerfið verji sjálft sig, það megi meðal annars sjá á viðbrögðum dómstóla í málum þar sem uppskáldaðar skýrslur starfsmanna barnavernda eru notaðar sem gögn í viðkvæmum málum.

„til dæmis í einu barnaverndarmáli sem ég var með áttaði ég mig á því að það væri verið að skrifa rangar skýrslur um umbjóðanda minn af hálfu barnaverndar og svo voru þessi ósannindi og rangfærslur notaðar gegn henni til þess að leitast eftir því að svipta henni barninu hennar, fyrir mér blasti þarna við að verið væri að fremja alvarlegt lögbrot af hálfu barnaverndar og þegar ég reyndi að benda á þetta ítrekað bæði þegar ég fór með málið fyrir kærunefnd velferðarmála og líka þegar ég fór með málið fyrir dómstóla þá voru viðbrögð þessara aðila þau að hunsa þessar málsástæður algerlega, þeir fjölluðu ekkert um þetta og minntust ekkert á þetta en samt voru þetta grundvallaratriði í málinu og þarna áttaði ég mig á því að ég gæti ekki treyst á dómstóla“.

Hún bendir á að það sé brýn þörf á því að börn fái talsmann til þess að tala máli þeirra í stað þess sem sé nú að þá sé lögmaðurinn að koma fram fyrir hönd foreldra.

„þarna þyrfti líka að vera aðili sem tekur upp hanskann fyrst og fremst fyrir barnið með hagsmuni þess eingöngu í huga“

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/2022/09/Siddegis-Sara-Palsdottir-14.09.22.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla