Meðal þess sem verkefnisstjórnin leggur til sem stefnumarkandi áherslur er að stóraukin áhersla verði lögð á heilsugæslu, forvarnir og endurhæfingu til að efla heilbrigði og draga úr þörf fyrir ótímabæra stofnanavist með tilheyrandi kostnaði. Óttarr segir auðvelt að taka undir þessar áherslur og að þær eigi góðan samhljóm með samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: „Þar er lýst vilja til að gera forvörnum og lýðheilsu hátt undir höfði og jafnframt að setja aukinn þunga í uppbyggingu öldrunarþjónustu, með áherslu á heimahjúkrun og hjúkrunarheimili, fjölgun rýma í dagdvöl og styttri bið eftir þjónustu.
„Ég hvet fólk til að kynna sér meðfylgjandi niðurstöður starfshópsins, því þetta er mikilvægt innlegg í umræðu um árangursríkar leiðir til að efla og bæta þjónustu við aldraða og þetta mun að sjálfsögðu nýtast við víðtæka stefnumótun til framtíðar á sviði heilbrigðismála. Öll umræða um þau mál er nauðsynleg og góð,“ segir Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.