Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, hefur skipað nýja stjórn Íslandsstofu. Stjórnin er skipuð samkvæmt lögum til þriggja ára, en skipunartími fyrrverandi stjórnar rann út í ágúst síðastliðnum. Stjórnina skipa sjö einstaklingar, valdir til þriggja ára í senn. Utanríkisráðherra skipar fjóra stjórnarmenn eftir tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn eftir tilnefningu iðnaðarráðherra, einn eftir tilnefningu mennta- og menningarmálaráðherra og einn án tilnefningar. Utanríkisráðherra skipar formann stjórnar að höfðu samráði við aðra tilnefningaraðila. Formaður stjórnar Íslandsstofu er Sigsteinn Páll Grétarsson, framkvæmdastjóri Arctic Green Energy Corporation (SA).
Aðrir í stjórn eru:
Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögur hf. (SA)