Site icon Útvarp Saga

Vinnur með efni úr smiðju forfeðranna

Ólafur F. Magnússon læknir, tónlistarmaður og fyrrverani borgarstjóri.

Ólafur F. Magnússon læknir, tónlistarmaður, og fyrrverandi borgarstjóri hefur undanfarin ár haslað sér völl í tónlistinni bæði með því að semja lög og texta sem þykja vel meitlaðir og fallegir.

Ólafur sem var gestur í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag segir að þó hann smíði flesta texta við lög sín sjálfur stundum í smiðju forfeðra sinna, til dæmis til langafa síns sem samdi ljóð fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum snemma á síðustu öld.

Þá segir Ólafur að eitt laga hans sem ber heitið Ferðabæn sé einmitt samið í kringum ljóð ömmu hans og segir Ólafur að honum þyki afar vænt um ljóðið

ég tek það í raun hvert sem er með mér, til dæmis þegar ég er að ferðast, það verndar mig á ferðalögum mínum„,segir Ólafur.

Ólafur hefur verið iðinn við að setja það efni sem hann hefur samið inn á Youtube en sjá má efnið með því að smella hér.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/file/hádegisviðtalið-24.7.19.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla