Site icon Útvarp Saga

Ólafur Ísleifsson í oddvitasæti hjá Flokki Fólksins

Dr. Ólafur Ísleifsson.

Dr. Ólafur Ísleifsson hefur gengið til liðs við Flokk fólksins og verður í oddvitasæti hjá flokknum í komandi þingkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flokki Fólksins. Ólafur Ísleifsson hefur lokið doktorsprófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann er með meistarapróf í hagfræði frá London School of Economics and Political Science og BS-próf í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur starfaði um tíu ára skeið sem lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur að baki fjölþætta starfsreynslu á sviði fjármála og efnahagsmála á vettvangi Seðlabanka Íslands, Þjóðhagsstofnunar, forsætisráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla